
Episode #25
#25 - Hildur Bergsdóttir
Í þættinum í dag er gestur minn Hildur Bergsdóttir. Hildur er félagsráðgjafi að mennt en leiðin hennar í vinnu með fólki hefur sjaldnast haldið sig innan eins ákveðins ramma. Íþróttastarf, félagsráðgjöf, ungmennastarf, alþjóðleg verkefni og útivist hafa smám saman runnið saman — og með tímanum varð náttúran sjálf hluti af því hvernig hún vinnur með fólki. Í samtalinu komum við meðal annars inn á hvernig Náttúruskólinn varð til úr hugmyndum og eldmóði, hvað getur gerst hjá börnum og ungu fólki þegar farið er út fyrir hefðbundið rými og hvers vegna Hildur telur að við gætum nýtt náttúruna miklu markvissar í vinnu með fólki. Við ræðum meðal annars: – hvernig Náttúruskólinn varð til við eldhúsborð – að skapa tækifæri fyrir börn sem komast ekki sjálfkrafa út í náttúruna – félagsráðgjöf utan hins hefðbundna viðtalsrýmis – þegar börn og ungmenni fá tækifæri til að blómstra á öðrum vettvangi – og hvers vegna Hildur virðist alltaf þurfa næstu áskorun Mjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki bara útkomuna. Þátturinn er í boði VÍS, Hjá Línu og Austurfréttar.






